Geirsgata

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Geirsgata

Kaupa Í körfu

SVOKALLAÐIR Jersey-steinar eru víða notaðir til að stýra umferð um vinnusvæði í borginni m.a. við Geirsgötu nú um stundir þar sem steinarnir mynda sveig norðan við Seðlabankahúsið. Athygli hefur vakið að steinarnir eru hvorki með ljósum né endurskinsmerkjum en lögregla hefur ekki gert athugasemd við þann frágang. Að sögn Árna Friðleifssonar, varðstjóra hjá umferðardeild lögreglunnar í Reykjavík, var götulýsing á staðnum talin duga en í öðrum tilvikum þar sem ekki er götulýsing fyrir eru verktakar skikkaðir til að setja ljós á steinana.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar