Sögulegir sjónarhólar í Perlunni

Gísli Sigurðsson

Sögulegir sjónarhólar í Perlunni

Kaupa Í körfu

Við Perluna í Öskjuhlíð er vafalaust einhver bezti sjónarhóll borgarinnar. Inni í Perlunni, í einum hitaveitutankinum, er annar áhugaverður sjónarhóll. Þar er Sögusafnið, hugmynd, framkvæmd og afreksverk eins manns, sem birtir okkur íslenzkt fornaldarfólk og miðaldafólk með tækni sem er svo raunsæ að áhorfandinn verður forviða og spyr: Var þetta virkilega svona? MYNDATEXTI Landnámshjónin Ingólfur Arnarson og Hallveig Fróðadóttir eru fyrirmannlega klædd. Hjónin Ernst J. Bachman og Ágústa Hreinsdóttir eru sjálf á bak við andlit þeirra og er ekki annað hægt að segja en að það smellpassar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar