Kross á Akranesi

Eyþór Árnason

Kross á Akranesi

Kaupa Í körfu

Fyrstu einbýlishúsalóðirnar í landi Kross í Hvalfjarðarsveit eru nú tilbúnar til afhendingar og er mikil eftirspurn eftir þeim, að sögn Þorgeirs Jósefssonar, framkvæmdastjóra Stafna á milli ehf., sem keypti jörðina 2003. Þorgeir Jósefsson segir að í fyrra hafi Stafna á milli gert samning við hreppsnefnd Innri-Akraneshrepps, sem nú heitir Hvalfjarðarsveit, um samstarf við uppbyggingu íbúðarsvæðis í landi Kross. Ennfremur hafi fyrirtækið gert samning við Orkuveitu Reykjavíkur og hreppinn um uppbyggingu og rekstur fráveitu, gagnaveitu, hitaveitu og vatnsveitu á svæðinu. MYNDATEXTI: Birta - Að undanförnu hefur gatnagerð staðið yfir í hverfinu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar