Skemmdir á göngustíg út á Granda

Brynjar Gauti

Skemmdir á göngustíg út á Granda

Kaupa Í körfu

ÞUNG vestanalda óð yfir varnargarð við Eiðsgranda og Ánanaust í óveðrinu á sunnudag og olli talsverðum skemmdum. Malbik á göngustíg brotnaði upp og grjót úr varnargarði og möl dreifðist víða. Skemmdirnar urðu frá Rekagranda og að bensínstöð Olís á móts við Vesturgötu og sjórinn sópaði þara og möl upp á göngustíg við Ægisíðu frá Fornhaga og út að Gnitanesi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar