Akureyri

Skapti Hallgrímsson

Akureyri

Kaupa Í körfu

MIKILL reykur gaus upp í íbúð í fjölbýlishúsi í Síðuhverfi síðdegis í gær. Reykkafarar leituðu að fólki en íbúðin var mannlaus. Húsráðendur voru reyndar ekki langt undan; þeir höfðu brugðið sér í heimsókn á hæðina fyrir ofan en urðu þessa áskynja þegar reykskynjari lét í sér heyra. Engum varð meint af, en mjög þykkur reykur var í íbúðinni þegar reykkafarar komu inn og talsverðar skemmdir urðu á innréttingu í eldhúsi af völdum elds og nokkrar skemmdir urðu af völdum reyks og sóts. MYNDATEXTI Slökkviliðsmenn að störfum fyrir utan húsið síðdegis í gær

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar