Rauði krossinn í Kópavogi

Brynjar Gauti

Rauði krossinn í Kópavogi

Kaupa Í körfu

Samskipti við fólk er mitt helsta áhugamál. Ég stunda líkamsrækt og lestur góðra sakamálasagna er í miklu uppáhaldi. Allir viðburðir, sem tengjast mat, eru áhugaverðir í mínum huga og auk þess hef ég lengi haft áhuga á ýmsum velferðarmálum. Frítíma minn um þessar mundir nota ég svo til að byggja upp sál og líkama, hvíla mig og vinna í íbúðinni sem ég og kærastinn minn erum að gera upp," segir Ingunn Ásta Sigmundsdóttir, verkefnastjóri sjálfboðamiðstöðvar Kópavogsdeildar Rauða kross Íslands, sem stendur fyrir fatamarkaði MK-nema á morgun til styrktar unglingum í Mósambik. Ingunn Ásta hóf störf hjá Kópavogsdeild Rauða krossins um miðjan ágúst sl. eftir að hafa útskrifast með BA-próf í uppeldis- og menntunarfræðum frá Háskóla Íslands. Hún segir námið nýtast sér vel í nýja starfinu, sem var auglýst samfara verkefnaaukningu deildarinnar. MYNDATEXTI Nemum í MK býðst að taka áfanga í sjálfboðnu starfi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar