Setbergsskóli skemmtun

Setbergsskóli skemmtun

Kaupa Í körfu

Glæsilegar Í félagsmiðstöðvum um land allt er líf og fjör í tuskunum. Keppni í Stíl er haldin í flestum skólum. Hópar af krökkum taka sig saman, velja sér módel og útfæra það í ákveðnum stíl. Hóparnir hanna og sauma klæðnaðinn. Síðan toppa þeir stílinn með hárgreiðslu og málun. Þemað í ár er móðir náttúra. Þessi keppni er haldin árlega og fjöldi unglinga leggur mikla vinnu í að heildarmynd módelsins verði sem best. Lokaeinvígið milli allra félagsmiðstöðvanna fer fram um næstu helgi. Þessi mynd er tekin í Setbergsskóla þar sem Hafnarfjarðakeppnin í Stíl var haldin um síðustu helgi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar