Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi

Sigurður Jónsson

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi

Kaupa Í körfu

ÁRNI M. Mathiesen fjármálaráðherra, Árni Johnsen, fyrrverandi þingmaður, og Kjartan Ólafsson þingmaður, höfnuðu í þremur efstu sætunum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi á laugardag. Talningu lauk snemma á sunnudagsmorgun. Þrír núverandi þingmenn Sjálfstæðisflokks: Drífa Hjartardóttir, Guðjón Hjörleifsson og Gunnar Örn Örlygsson lentu nokkuð neðar á listanum. Sjálfstæðisflokkurinn fékk þrjá þingmenn kjörna í Suðurkjördæmi í síðustu kosningum. MYNDATEXTI: Úrslitanna beðið - Frambjóðendur fylgjast spenntir með talningu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar