Skuggaleikur - Íslenska óperan

Brynjar Gauti

Skuggaleikur - Íslenska óperan

Kaupa Í körfu

SKUGGALEIKUR, ný íslensk ópera, verður frumsýnd næstkomandi laugardag í Íslensku óperunni. Óperan er samstarfsverkefni Íslensku óperunnar og Strengjaleikhúss Messíönu Tómasdóttur. Messíana átti frumkvæðið að því að verkið var samið auk þess að leikstýra því, hanna búninga og sviðsmynd. Karólína Eiríksdóttir samdi tónlistina og Sjón skrifaði textann. Óperan byggist á sögunni Skugganum eftir H.C. Andersen. "Ég las söguna fyrir tuttugu árum og varð mjög hugsi yfir henni enda er hún margræð. Ég hef lengi haft áhuga á H.C. Andersen og þetta er ein af fáum fullorðinssögum sem hann skrifaði. Fyrir nokkrum árum hugsaði ég svo með mér að sagan yrði næsta ópera sem ég setti upp," segir Messíana sem blaðamaður hitti ásamt Karólínu í kjallara Óperunnar einn kaldan nóvemberdag. MYNDATEXTI: Margræð - Söngkonan Ásgerður Júníusdóttir er myrk sem skuggaprinsessan sem slæst í lið með skugganum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar