Caritas með styrktartónleika í Kristskirkju

Eyþór Árnason

Caritas með styrktartónleika í Kristskirkju

Kaupa Í körfu

Caritas á Íslandi efnir til styrktartónleika í þágu fatlaðra barna í Kristskirkju við Landakot sunnudaginn 19. nóvember kl. 16. Dagskráin er einkar glæsileg í flutningi úrvals einsöngvara, kóra og hljóðfæraleikara og gefa allir vinnu sína. Forsala aðgöngumiða er í Pennanum Eymundsson í Austurstræti og Smáralind og á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins að Digranesvegi 5 í Kópavogi. Miðasala verður einnig við innganginn. Miðaverð 2.500 kr. Allur ágóði tónleikanna mun renna til Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar