Dagur íslenskrar tungu á Hvammstanga

Karl Sigurgeirsson

Dagur íslenskrar tungu á Hvammstanga

Kaupa Í körfu

VEGUR Dags íslenskrar tungu hefur vaxið jafnt og þétt frá því hann var fyrst haldinn árið 1996. Sífellt fleiri stofnanir og einstaklingar helga þennan dag rækt við hið ástkæra og ylhýra með ýmsum hætti og er skólastarf landsins til að mynda að stórum hluta tileinkað deginum og afmælisbarninu, Jónasi Hallgrímssyni. Á bókasöfnunum hefur einnig skapast sú hefð að gera deginum hátt undir höfði, bæði með hefðbundnum hætti og óvenjulegum uppákomum, eins og ljóðalestur starfsmanna Ársafns í kallkerfi Bónuss er dæmi um. Þá er menntamálaráðherra jafnan á þönum. Dagurinn í gær var engin undantekning en Þorgerður Katrín opnaði m.a. tvö vefsvæði tileinkuð íslenskri tungu með ýmsum hætti, heimsótti börn í Kópavogi og veitti að endingu Nirði P. Njarðvík verðlaun Jónasar Hallgrímssonar. MYNDATEXTI: Upplestur - Eldri borgarar lásu upp ljóð fyrir gesti Héraðsbókasafnsins á Hvammstanga í tilefni dagsins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar