Farmur losnar af flutningabíl

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Farmur losnar af flutningabíl

Kaupa Í körfu

MIKIL mildi þykir að engin slys urðu á fólki í gær þegar festingar á hitaveiturörum slitnuðu með þeim afleiðingum að þau féllu af palli flutningabíls í götuna á mótum Kringlumýrar- og Suðurlandsbrautar. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Reykjavík þurfti að kalla út gröfu til þess að lyfta rörunum aftur upp á pall bílsins og festa þau niður með fullnægjandi hætti en þau stóðu engu að síður fimm metra aftur af bílnum. Talsverðar umferðartafir urðu meðan þessu fór fram. Að sögn lögreglu verður ökumaður flutningabílsins að öllum líkindum kærður fyrir brot á umferðarlögum með því að vanrækja skyldur um frágang á farmi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar