Alþingi

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Alþingi

Kaupa Í körfu

STJÓRNARANDSTAÐAN vill að greiðslur til elli- og örorkulífeyrisþega hækki um 7,4 milljarða á næsta ári. Hún hefur sameiginlega lagt fram tillögu þessa efnis fram á Alþingi. Tillagan er breytingartillaga við frumvarp til fjárlaga næsta árs. Þetta er jafnframt eina breytingartillaga stjórnarandstöðunnar við fjárlagafrumvarpið. Þingflokksformenn stjórnarandstöðuflokkanna, ásamt Katrínu Júlíusdóttur, fulltrúa Samfylkingarinnar í fjárlaganefnd Alþingis, kynntu tillöguna á sérstökum blaðamannafundi í gærmorgun. MYNDATEXTI: Önnum kafnir- Þingmenn voru önnum kafnir á Alþingi í gær, en þá fór fram önnur umræða um fjárlagafrumvarpið. Stefnt er að því að frumvarpinu verði vísað til þriðju umræðu í dag.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar