Kári Steinn skemmtir sér við að brjóta klaka

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Kári Steinn skemmtir sér við að brjóta klaka

Kaupa Í körfu

LÍTIÐ er orðið eftir af snjó á höfuðborgarsvæðinu eftir að hlýna tók og reikna má með því að snjórinn verði nær allur horfinn fyrir helgi. Enn má þó finna stöku skafl og eru börnin þá jafnan ekki langt undan. Þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið hjá var hinn ungi Kári Steinn í óða önn að brjóta klaka og færa til snjóköggla við einn skaflinn. Var ekki annað að sjá en hann væri hæstánægður með það litla sem eftir er af snjónum og óskaði þess aðeins að kólna fari á ný svo áframhald verði á gerð snjókarla og -kerlinga.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar