Fram - Fylkir

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Fram - Fylkir

Kaupa Í körfu

MIKIÐ gekk á þegar Fylkir sótti Fram heim í Safamýrina er 8. umferð lauk í gærkvöldi. Hugur Árbæinga til sigurs virtist víðs fjarri þegar þeir byrjuðu á að láta reka sig útaf fyrir röfl auk þess að fá síðar í leiknum tvö rauð spjöld fyrir brot. Fram nýtti sér það til hins ýtrasta, náði forystu snemma og hélt út leikinn í með 34:29 sigri. Fylkir er því áfram í sjöunda sæti en Fram, sem unnið hefur upp frestaða leiki vegna þátttöku í Evrópukeppninni, er í þriðja sæti með tveimur stigum minna en efsta liðið. MYNDATEXTI: Drjúgur - Jóhann Gunnar Einarsson var atkvæðamikill með Frömurum eins og oft áður þegar þeir lögðu Fylkismenn í gærkvöldi. Hér skorar hann eitt sjö marka sinna í leiknum þrátt fyrir varnartilburði Þóris Júlíussonar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar