Fiskisúpa - Katrín Leifsdóttir

Sigurður Elvar

Fiskisúpa - Katrín Leifsdóttir

Kaupa Í körfu

Það getur verið gott eftir reyktan og saltan jólamatinn að borða ferskari fæðu frétti Sigurður Elvar Þórólfsson hjá kennaranum Katrínu Leifsdóttur. Við borðum alltaf fiskisúpu á milli jóla og nýárs. Það er gott að hvíla sig á kjötinu og einn vinur minn segir að þegar kjötsviminn eftir jólahátíðina fer að segja til sín er best að ná sér niður með góðri fiskisúpu og bragðgóðu brauði," segir Katrín Leifsdóttir, kennari í Grundaskóla á Akranesi. Katrín hefur á undanförnum árum boðið vinkonum sínum í fiskisúpu og bakar hún magnað brauð með réttinum sem útsendari Morgunblaðsins fékk að bragða á. MYNDATEXTI: Gullfiskurinn Gulli slapp lifandi frá súpugerðinni enda ólíklegt að hann hefði bragðbætt ilmandi "bæjarskrifstofu"súpuna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar