Múrbrjóturinn

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Múrbrjóturinn

Kaupa Í körfu

FREYJA Haraldsdóttir og Alþýðusamband Íslands og Hlutverk - samtök um vinnu og verkþjálfun, fengu afhenta Múrbrjótana, viðurkenningu Landssamtakanna Þroskahjálpar, við hátíðlega athöfn í gær. Það var Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra sem afhenti viðurkenningarnar á alþjóðlegum degi fatlaðra. Í fréttatilkynningu segir að Freyja Haraldsdóttir fái viðurkenninguna "fyrir að stuðla að breyttri ímynd fatlaðs fólks með fyrirlestrum sínum í framhaldsskólum, en fyrirlesturinn nefnir Freyja "Það eru forréttindi að vera með fötlun". Með fyrirlestrum sínum leiðir Freyja áheyrendur inn í reynslu manneskju sem býr við mikla skerðingu en ekki síður tekst henni að draga fram að það sé ekki sjálfgefið að þessi skerðing aftri henni frá fullri þátttöku í lífinu og geti ef vel tekst til eflt með henni þroska." MYNDATEXTI: Starfið viðurkennt - Freyja Haraldsdóttir, Alþýðusamband Íslands og Hlutverk, samtök um vinnu og verkþjálfun, fengu Múrbrjótinn fyrir starf sitt í þágu fatlaðra. Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra veitti viðurkenninguna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar