Suðurlandsvegur við Sandskeið

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Suðurlandsvegur við Sandskeið

Kaupa Í körfu

TVENNT lést í hörðum árekstri tveggja fólksbíla á Suðurlandsvegi um miðjan dag á laugardag, fimm ára stúlka og karlmaður um þrítugt. Þrír til viðbótar slösuðust, þar af einn alvarlega. Slysið varð um kl. 14.30 á Suðurlandsvegi við Sandskeið, við afleggjarann að Bláfjöllum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Reykjavík voru bílarnir að koma úr gagnstæðum áttum er þeir rákust á, og er talið að ökumaður annars bílsins hafi verið að taka fram úr vöruflutningabifreið. MYNDATEXTI: Harður árekstur- Bílarnir voru mjög illa farnir eftir áreksturinn en talið er að ökumaður annars bílsins hafi verið að fara fram úr þegar slysið varð.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar