Innlit

Sverrir Vilhelmsson

Innlit

Kaupa Í körfu

Ég er nú ekki mikið að velta fyrir mér dags daglega hönnun og híbýlum," segir Guðjón Kjartansson þegar þau hjónin eru spurð hvort þeirra eigi nú heiðurinn af þessu fallega heimili. "Kolbrún [Davíðsdóttir] á nú mestan heiðurinn," segir hann og lítur stoltur á konu sína. Hún hlær en tekur strax fram að eiginmaðurinn sé mjög viðræðugóður um það sem viðkomi heimili þeirra. "En ætli ég sé ekki sú sem hefur meiri áhuga á hönnun, uppröðun hluta og smáatriðunum eins og Guðjón nefnir það stundum. Hann er hins vegar mjög bóngóður og framkvæmir orðalaust það sem ég bið hann um og kemur oft líka með góðar hugmyndir að lausnum." MYNDATEXTI Kommóður með vel skipulögðu geymslurými sem jafnframt er sólbekkur. Hannað af Rut Káradóttur

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar