Víkingamiðstöðin í Ribe

Helgi Bjarnason

Víkingamiðstöðin í Ribe

Kaupa Í körfu

Víkingagarðar og lifandi sögusöfn eru fjölsóttir ferðamannastaðir á Norðurlöndunum og hér á landi eru nokkur slík verkefni í undirbúningi. Helgi Bjarnason heimsótti nokkra víkingagarða og kynnti sér stöðu mála hér. Ferðamenn sýna svokallaðri menningartengdri ferðaþjónustu vaxandi áhuga. Undir það fellur sögutengd ferðaþjónusta og hefur hlutur hennar farið vaxandi. Töluvert hefur verið byggt upp til að mæta vaxandi eftirspurn, meðal annars á Norðurlöndunum, þar sem víða er að finna aðstöðu þar sem ferðafólk getur upplifað söguna. MYNDATEXTI: Víkingahestar - Íslensku hestarnir sem kallaðir eru víkingahestar vekja lukku í Víkingamiðstöðinni í Ribe á Jótlandi, ekki síst meðal barna. Húsdýrin eru ómissandi hluti af þessum skemmtilega danska víkingagarði.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar