Fyrkat víkingamiðstöð

Helgi Bjarnason

Fyrkat víkingamiðstöð

Kaupa Í körfu

Víkingagarðar og lifandi sögusöfn eru fjölsóttir ferðamannastaðir á Norðurlöndunum og hér á landi eru nokkur slík verkefni í undirbúningi. Helgi Bjarnason heimsótti nokkra víkingagarða og kynnti sér stöðu mála hér. Ferðamenn sýna svokallaðri menningartengdri ferðaþjónustu vaxandi áhuga. Undir það fellur sögutengd ferðaþjónusta og hefur hlutur hennar farið vaxandi. Töluvert hefur verið byggt upp til að mæta vaxandi eftirspurn, meðal annars á Norðurlöndunum, þar sem víða er að finna aðstöðu þar sem ferðafólk getur upplifað söguna. MYNDATEXTI: Járnsmíði - Gömul vinnubrögð eru sýnd í víkingagörðunum. Starfsmenn í Víkingamiðstöðinni Fyrkat á Jótlandi eru duglegir við járnsmíðarnar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar