Vonskuveður í Reykjavík

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Vonskuveður í Reykjavík

Kaupa Í körfu

BJÖRGUNARSVEITIR á suðvesturhorninu sinntu mörgum hjálparbeiðnum á laugardagskvöld vegna suðaustanhvassviðris. Var þetta enn eitt stóra óveðursútkallið það sem af er vetri en verkefni björgunarsveitarmanna voru þó talsvert frábrugðin þeim sem komið hafa upp að undanförnu. Þannig þurftu björgunarsveitarmenn að binda niður flugvélar og dæla upp úr smábátum við hafnir, enda sjávarstaða há, auk þess sem óvenjuslæmt hvassviðri var á Kjalarnesi. MYNDATEXTI: Að störfum - Björgunarsveitarmenn voru önnum kafnir við að bjarga verðmætum frá tjóni og leiðbeina vegfarendum í óveðrinu á laugardagskvöld.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar