Ragnar Bjarnason heimsækir Hrafnistu

Sverrir Vilhelmsson

Ragnar Bjarnason heimsækir Hrafnistu

Kaupa Í körfu

RAGNAR Bjarnason og Þorgeir Ástvaldsson ásamt borgarstjóranum í Reykjavík, Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, heimsóttu hjúkrunarheimilið Hrafnistu í Laugarási í gær við mikinn fögnuð viðstaddra. Vilhjálmur spjallaði við fólkið um það sem því liggur á hjarta um málefni aldraðra auk þess sem rætt var um jólaundirbúning og þýðingu jólanna. Að sögn Huldu Gunnarsdóttur, upplýsingafulltrúa á skrifstofu borgarstjóra, mun stefnan hafa verið sett á að þremenningarnir heimsæki öll hjúkrunarheimilin á höfuðborgarsvæðinu fyrir jólin. Eins og Ragga Bjarna einum er lagið fékk hann fólkið til liðs við sig í söng, en einnig tók borgarstjórinn sjálfur lagið við góðar undirtektir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar