Hjúkrunarheimilið Grund - garðskáli vígður

Brynjar Gauti

Hjúkrunarheimilið Grund - garðskáli vígður

Kaupa Í körfu

BJARTUR og rúmgóður garðskáli við matsalinn á Litlu-Grund var formlega tekinn í notkun á mánudag. Miklar framkvæmdir og endurbætur hafa staðið yfir á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund síðastliðin fimm ár. Að sögn Júlíusar Rafnssonar, framkvæmdastjóra Grundar, hafa tvær viðbyggingar verið teknar í notkun við Grund við Hringbraut en með þeim hefur starfsfólk fengið betri vinnuaðstöðu en áður og sameiginlegt rými fyrir heimilisfólk hefur verið stækkað til muna, m.a. með rúmgóðum setustofum. MYNDATEXTI Bjartur og rúmgóður garðskáli er kominn við matsalinn á Litlu Grund og einnig er búið að taka í notkun tengibyggingu milli Grundar við Hringbraut og Litlu Grundar. Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir sl. ár.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar