Andri Már 2 mánaða

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Andri Már 2 mánaða

Kaupa Í körfu

ANDRI Már, sem er aðeins tveggja mánaða myndarstrákur, er í hópi gjafmildra Íslendinga sem lagt hafa jólapakka undir jólatré í Kringlunni en pakkana fá börn skjólstæðinga Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur og Fjölskylduhjálpar Íslands. Söfnunin gengur vel en samtökin sem að söfnuninni standa hvetja landsmenn til að taka höndum saman og setja enn fleiri pakka undir tréð. Höfuðborgarbúar eru ekki þeir einu sem geta aðstoðað því Íslandspóstur sér um að senda pakka frá fólki utan af landi, endurgjaldslaust. Síðasti dagurinn sem tekið er á móti pökkum í Kringlunni er miðvikudagurinn 20. desember.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar