Fimleikadeild Hattar fagnar 20 árum

Steinunn Ásmundsdóttir

Fimleikadeild Hattar fagnar 20 árum

Kaupa Í körfu

Egilsstaðir | Fimleikadeild Hattar fagnar um þessar mundir 20 ára afmæli sínu. Á glæsilegri fimleikasýningu sem haldin var af þessu tilefni í Íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum um liðna helgi sagði Adda Birna Hjálmarsdóttir, formaður deildarinnar, að upphafið mætti rekja til atorku Unnars Vilhjálmssonar og Hólmfríðar Jóhannsdóttur sem unnu mikilvægt brautryðjendastarf við að koma deildinni á legg. Í byrjunarhópnum hjá Unnari og Hólmfríði voru m.a. Adda Birna sjálf og Auður Vala Gunnarsdóttir, yfirþjálfari fimleikadeildarinnar, en hún hefur unnið af miklum metnaði. Adda Birna lýsi því hvernig iðkun og tækjabúnaður deildarinnar hefur vaxið á þessum 20 árum MYNDATEXTI Adda Birna Hjálmarsdóttir segir fimleikana í sókn

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar