Jólaföt

Sverrir Vilhelmsson

Jólaföt

Kaupa Í körfu

Jólahaldi fylgja skemmtanir, matarveislur og allskyns hittingur. Þá er gaman að bregða sér í fagra flík sem getur svo sannarlega sett punktinn yfir hátíðarskapið. Fyrir smáfólkið er mikilvægt að fatnaðurinn sé þægilegur því þannig er hægt að vera áfram maður sjálfur, frjálslegur, lifandi og njóta þessara gleðistunda óþvingaður. Ekki er verra ef hægt er að nota flíkina eftir að jólahaldi lýkur, fram eftir ári, í afmælum og öðrum skemmtilegheitum. Verslanir eru sneisafullar af dýrindis klæðum en það fer hver að verða síðastur því þau rjúka út þessa síðustu daga fyrir jól. MYNDATEXTIBryndís Perla er í flauelskjól og sokkabuxum úr Hnokkum og hnátum. 2.590 og 10.890 kr. Inga Þóra klæðist fötum frá Polarn og Pyret. Peysan kostar 3.400 kr., bolurinn 2.600 kr. og pilsið 3.900 kr.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar