Börn og foreldrar í Melaskóla

Jim Smart

Börn og foreldrar í Melaskóla

Kaupa Í körfu

Börn, mömmur og pabbar mættu í skólann í gær er flestir skólar á höfuðborgarsvæðinu voru settir. Pabbi og mamma voru þó aðeins í heimsókn til að fá fregnir af komandi skólastarfi vetrarins en það eru síðan börnin sem eiga eftir að sitja yfir bókunum í vetur. Hins vegar er skólinn oft svo skemmtilegur og margt til gamans þar gert að fæstum leiðist nú að skólinn byrji. Börn og foreldrar í Melaskóla voru í það minnsta mjög áhugasöm um skólastarfið fram undan og fylgdust vel með því sem kennarinn hafði að segja, fyrsta skóladaginn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar