Krakkar dunda sér inni í skólanum

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Krakkar dunda sér inni í skólanum

Kaupa Í körfu

ÞAÐ FER lítið fyrir jólastressinu hjá börnunum í Snælandsskóla sem voru í gær að skreyta fyrir jólin og föndra. Voru þau m.a. að hengja upp listaverk sem þau höfðu unnið úr perlum. Þrátt fyrir slagviðrið utandyra ríkti ró og friður í skólastofunni. Jólin hafa þó eflaust verið börnunum ofarlega í huga, enda líður senn að stóru stundinni. Líklega getur fullorðna fólkið lært töluvert af börnunum þegar kemur að því að njóta aðdraganda jólanna í rólegheitunum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar