Helga Fanney Edwardsdóttir og Stefanía Veiga Sigurjónsdóttir

Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Helga Fanney Edwardsdóttir og Stefanía Veiga Sigurjónsdóttir

Kaupa Í körfu

Ég er bara að læra á píanó af því að langafi minn gaf konunni sinni þennan flygil í morgungjöf," segir Stefanía Veiga Sigurjónsdóttir, átta ára, feimnislega þegar hún er beðin að segja frá ástæðunni fyrir því að hún er nú að læra á píanó ásamt mömmu sinni. "Ég fer í píanótíma í Tónheimum einu sinni í viku," bætir hún við, ennþá pínulítið feimin. Mamma hennar, Helga Fanney Edwardsdóttir, erfði flygil eftir ömmu sína fyrir tveimur árum og ákvað að láta gamlan draum rætast þegar flygillinn komst í hennar hendur og ákvað að læra líka á píanó þannig að þær mæðgur stunda nú tónlistarnámið saman. MYNDATEXTI: Amman og langamman Myndin af Doris Walker Finnsson er á heiðursstað á flyglinum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar