Orkugarður

Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Orkugarður

Kaupa Í körfu

ÓLAFUR G. Flóvenz, forstjóri Íslenskra orkurannsókna, og Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, undirrituðu í gær samstarfssamning til 5 ára. Samningurinn er gerður til að efla samstarf í ljósi þess að kennsla og rannsóknir Háskólans tengjast á margan hátt rannsóknum og verkefnum Íslenskra orkurannsókna. Starfsmenn Íslenskra orkurannsókna (ÍSOR) hafa margir mikla reynslu af kennslu og þjálfun háskólanema í grunnnámi sem og á meistarastigi. Jafnframt hafa ÍSOR og HÍ haft með sér nokkurt óformlegt samstarf um rannsóknir og um kaup og rekstur á tækjum til jarðvísindarannsókna. MYNDATEXTI: Samstarfssamningur - Ólafur Flóvens, forstjóri Íslenskra orkurannsókna, og Kristín Ingólfsdóttir, rektor HÍ, undirrituðu samstarfssamning í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar