Strand við Sandgerði

Brynjar Gauti

Strand við Sandgerði

Kaupa Í körfu

Flutningaskipið Wilson Muuga var með tómar lestar er það strandaði rétt við Sandgerði í gærmorgun en í því voru 137 tonn af olíu. Var áhöfn skipsins bjargað og einnig sjö manns af danska varðskipinu Triton. Sá áttundi lést. Ráðgert var að leggja veg niður í flæðarmálið og stefnt að því að hefjast handa við að dæla olíu úr flutningaskipinu nú í morgun. MYNDATEXTI: Á strandstað - Björgunarmenn bera saman bækurnar en skammt undan landi sér í flutningaskipið. Voru aðstæður mjög erfiðar, niðamyrkur, hvasst og 5-6 m ölduhæð.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar