Jólaball í Smáraskóla

Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Jólaball í Smáraskóla

Kaupa Í körfu

JÓLABÖLLIN standa sem hæst um þessar mundir enda sjálfur aðfangadagur á næsta leiti. Börnin flykkjast á jólatrésskemmtanir og virðast ekki láta það á sig fá þótt allt stefni í rauð jól með asahláku og hlýindum. Gott ráð til þess að viðhalda jólaskapinu gæti því verið fólgið í að syngja Gekk ég yfir sjó og land og hitti þar einn gamlan mann. Ekki má heldur gleyma honum Adam sem átti syni sjö og jólasveinum einum og átta eins og þessi börn í Smáraskóla höfðu svo sannarlega hugfast í gærmorgun.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar