Vatnselgur á Akureyri

Skapti Hallgrímsson

Vatnselgur á Akureyri

Kaupa Í körfu

"ÉG HEFÐI gjarnan viljað undirbúa jólin með börnunum en þetta gerðist og þá verður bara að taka því. Og jólin koma þrátt fyrir allt og verða hátíðleg," sagði Halla Tuliníus, íbúi við Grenilund á Akureyri við Morgunblaðið síðdegis í gær en töluverðar skemmdir urðu á neðri hæð parhúss hennar og Guðjóns Ingva Geirmundssonar í fyrrinótt, þegar vatn flæddi þar inn. Mikill snjór hefur verið á Akureyri undanfarið en þegar skyndilega hlýnaði og hellirigndi að auki hafði holræsakerfi bæjarins ekki undan og víða var vatnselgur. Loka þurfti einstaka götu, Hlíðarbraut rofnaði til að mynda en verst var ástandið við Grenilund ofarlega á Brekkunni, og þar flæddi mikið inn í þrjú hús. MYNDATEXTI: Margar hendur - Félagar í björgunarsveitinni Súlum báru út húsgögn og ýmsa aðra muni úr kjallara hússins við Grenilund 17. Myndin er tekin í fyrrinótt þegar fjöldi manna var að störfum vegna vatnselgsins í götunni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar