Björgvin Halldórsson

Björgvin Halldórsson

Kaupa Í körfu

UPPTAKA tónleika Björgvins Halldórssonar, Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Karlakórsins Fóstbræðra og fleiri góðra gesta er einhver mest selda platan fyrir þessi jólin. Platan inniheldur ekki einungis upptöku af tónleikunum heldur fylgir einnig mynddiskur frá tónleikunum, sem fram fóru í Laugardalshöllinni fyrr á árinu. "Það er mikill samhljómur í öllu hér, mynddiskur sem fylgir með er vel til fundinn, og inniheldur aukaefni eins og ljósmyndir og heimildarmynd þar sem fylgst er með æfingum og slíku. Pakkningar eru sömuleiðis glæsilegar," segir meðal annars í dómi Arnars Eggerts Thoroddsen um plötuna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar