Magni superstar

Jim Smart

Magni superstar

Kaupa Í körfu

EINS og fram kom í Morgunblaðinu í gær hefur Magni Ásgeirsson, söngvari hljómsveitarinnar Á móti sól, verið valinn til þess að taka þátt í raunveruleikaþættinum Rock Star: Supernova, sem sýndur verður út um allan heim í sumar og fram á haust. Í þættinum keppa 15 söngvarar um stöðu söngvara í hljómsveitinni Supernova sem var sérstaklega búin til af þessu tilefni, og er skipuð trommaranum Tommy Lee úr Mötley Crüe, bassaleikaranum Jason Newstead sem var í Metallica og Gilby Clarke, fyrrverandi gítarleikara Guns N' Roses. MYNDATEXTI: "Ef ég vinn þá sé ég fyrir þáttinn Pop Star: Á móti sól á Skjá einum á næsta ári," segir Magni rokkstjarna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar