Jólaverslun

Sverrir Vilhelmsson

Jólaverslun

Kaupa Í körfu

SIGURÐUR Jónsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, spáir því að verslun í dag verði meiri en nokkru sinni fyrr og áætlar að salan geti numið um þremur milljörðum króna. Þar með yrði slegið Íslandsmet í verslun á einum degi. Hann segir að veðrið að undanförnu hafi haft áhrif á jólaverslunina en hún hafi þó verið með mesta móti það sem af er mánuðinum. Alls er spáð um 9% aukningu í jólaversluninni í ár miðað við fast verðlag, en í fyrra varð aukningin í verslun 11%.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar