Flóð á Suðurlandi

Ragnar Axelsson

Flóð á Suðurlandi

Kaupa Í körfu

FLÓÐIÐ í Hvítá hefur mikið rénað en hún er þó hvergi nærri horfin í sinn hefðbundna farveg. Þegar ljósmyndari Morgunblaðsins flaug yfir flóðasvæðið í gær var engu líkara en sumir bæirnir væru byggðir á eyjum í risastóru stöðuvatni. Ljóst má vera að vatnið mátti ekki hækka miklu meira við bæinn Útverk á Skeiðum, sem sést á myndinni, og víst verður að hrósa húsráðanda fyrir að hafa valið sér gott bæjarstæði, a.m.k. það besta í nágrenninu. Fært var orðið á alla bæi í gær og fóru margir strax af stað í innkaupaleiðangur. | 30-31

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar