Bílslys við Laxá í Refasveit

Jón Sigurðsson

Bílslys við Laxá í Refasveit

Kaupa Í körfu

Refasveit | Bíll fór út af veginum við Laxá í Refasveit í fyrrakvöld. Bíllinn hitti ekki á hina einbreiðu brú sem liggur yfir ána á veginum milli Blönduóss og Skagastrandar. Mikil mildi þykir að menn komust óskaddaðir frá þessu. Bíllinn lenti í skyndilegu hríðarkófi og lenti utan vegar og fyrir tilviljun lá leið bílsins á milli tveggja kletta. Allir voru í bílbeltum og komust að mestu heilir frá þessu óhappi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar