Útskrift frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Gunnar Kristjánsson

Útskrift frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Kaupa Í körfu

Grundarfjörður | Tíu nýstúdentar voru brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga við slit haustannar. Fimm þeirra luku prófi af náttúrufræðibraut, fjórir af félagsfræðibraut og einn nemandi útskrifaðist með viðbótarnám til stúdentsprófs. Oddný Assa Jóhannsdóttir, nemandi á náttúrufræðabraut, hlaut þrenn verðlaun við útskriftina. Hún hlaut verðlaun fyrir bestan árangur á stúdentsprófi en þau verðlaun voru gefin af sveitarfélögunum sem standa að skólanum, fyrir góðan árangur í íslensku hlaut hún verðlaun gefin af Eddu-miðlun og verðlaun frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga fyrir góðan árangur í spænsku. Verðlaun fyrir góðan árangur í líffræði gefin af KB banka hlaut Ingibjörg Eyrún Bergvinsdóttir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar