Stelsýki

Stelsýki

Kaupa Í körfu

BORIÐ hefur á því að þjófar vinni saman í hópum í Kringlunni og steli úr verslunum, að sögn Sigurjóns Arnar Þórssonar, framkvæmdastjóra Kringlunnar. Brugðist hefur verið við þessu með því að auka öryggisgæslu á svæðinu auk þess sem lögregla er sýnilegri en áður. Þá segir Sigurjón að æ fleiri verslunareigendur ráði sér eigin öryggisverði til að sinna gæslu. Hann segir að þjófnaður úr verslunum sé vaxandi vandamál og ekki bundið við jólatímann. Það sé hins vegar nýtt að þjófarnir vinni skipulega saman eins og dæmi séu nú um en Sigurjón segir að öryggisverðir í Kringlunni hafi tekið eftir þessu á myndböndum og út frá upplýsingum starfsfólks í Kringlunni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar