Jólaball

©Sverrir Vilhelmsson

Jólaball

Kaupa Í körfu

Í dag er aðfangadagur jóla, dagurinn sem svo margir hafa beðið eftir undanfarnar vikur, dagurinn sem allt hefur snúist um síðustu dægrin. Og nú er stundin runnin upp. Í kvöld minnumst við, sem höldum upp á jólin, fæðingar Krists, hver með sínum hætti. Eftirvæntingin er sennilega hvað mest hjá börnunum. Þau hafa mörg hver beðið í ofvæni; talið niður dagana;...þrír, tveir, einn og...í dag eru jólin loksins komin. Þau hafa fylgst með jólasveinunum, sem hafa fært þeim, sem fara snemma að sofa, eitthvert lítilræði í skóinn og á jólaböllunum hafa þau sungið jólalög og dansað í kringum vel skreytt jólatré. MYNDATEXTI: Hæfileikaríkir jólasveinar. Já, jólasveinunum er margt til lista lagt; þeir spila á gítar og fleiri hljóðfæri, syngja og dansa í kringum jólatréð, á milli þess sem þeir láta lítinn glaðning í jólaskó barnanna á kvöldin. Krakkarnir á jólaballi Einstakra barna eru að minnsta kosti miklir aðdáendur jólasveinsins ef marka má þessa mynd.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar