Olíu dælt úr Wilson Muuga á strandstað

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Olíu dælt úr Wilson Muuga á strandstað

Kaupa Í körfu

LJÓST er að umtalsvert magn af bæði svart- og dísilolíu fór í sjóinn við strand flutningaskipsins Wilson Muuga. Dæling á olíu úr skipinu hófst í fyrrinótt og stóð enn yfir þegar Morgunblaðið fór í prentun. Þá hafði alls rúmum 60 tonnum af olíu verið dælt úr skipinu. Um borð í Muuga voru alls 120 tonn af svartolíu og 17 tonn af dísilolíu. Davíð Egilson, forstjóri Umhverfisstofnunar, segir ljóst að umtalsvert magn af olíu hafi farið í sjóinn þegar skipið tók niðri en ekki sé unnt að gefa upp nákvæma tölu fyrr en dælingu sé alveg lokið. MYNDATEXTI. Á strandstað - Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra ræðir við þá Davíð Egilson, t.h., og Gottskálk Friðgeirsson frá Umhverfisstofnun en ráðherrann kynnti sér gang mála á strandstað við Hvalsnes í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar