Brenna hjá Fylki

Brynjar Gauti

Brenna hjá Fylki

Kaupa Í körfu

FÉLAGARNIR Ragnar Þór, Haukur Þór og Árni Hlynur unnu hörðum höndum að því í gær að safna í bálköst sem kveikt verður í við Rauðavatn á gamlárskvöld. Brennan er á vegum íþróttafélagsins Fylkis og fram að þessu hefur hún verið á Brennuhól við Fylkisvöllinn en ákveðið var að færa hana að Rauðavatni í ár. Með strákunum á myndinni eru hundarnir Bína og Embla. Virtust ferfætlingarnir ekki síður áhugasamir um brennuna og lágu ekki á liði sínu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar