Stefán Geir Sigurbjörnsson

Stefán Geir Sigurbjörnsson

Kaupa Í körfu

Upp komst um tæplega 90 fíkniefnamál á Akureyri og í Vestmannaeyjum SÉRÞJÁLFAÐIR leitarhundar áttu stóran þátt í því að upp komst um 46 fíkniefnamál á Akureyri um helgina. Að sögn Daníels Guðjónssonar, yfirlögregluþjóns á Akureyri, hafa ekki verið teknar saman tölur um það hversu mörg málum hundarnir komu beint að, en hann segist geta ímyndað sér að hundarnir eigi þátt í um tveimur þriðju þeirra mála sem komust upp. Hann slær þó þann varnagla að hann ábyrgist ekki þær tölur en dregur ekkert úr því að hundarnir hafi skilað góðu starfi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar