Einar Logi Þorleifsson

Einar Logi Þorleifsson

Kaupa Í körfu

VÆN maríuhæna gerði sig heimakomna á heimili einu í Kópavogi nú í vikunni og leikur ákveðinn grunur á að hún hafi gerst laumufarþegi með lifandi jólatré sem keypt var til heimilisins um þessi jól. Það var Einar Logi Þorleifsson, 6 ára, sem fann maríuhænuna og kom henni fyrir í krukku þar sem hann hefur stundað athuganir á henni af töluverðum áhuga. Maríuhæna er rándýr, sem lifir til dæmis á blaðlúsum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar