Áramótabrennur á Akranesi

Morgunblaðið/Sigurður Elvar

Áramótabrennur á Akranesi

Kaupa Í körfu

Akranes | Helmingi fleiri áramótabrennur voru á gamlárskvöld að þessu sinni en venjulega. Vegleg brenna var við enda Víðigrundar þar sem Þráinn Sigurðsson hefur verið titlaður brennukóngur í ein 27 ár. "Jú, ég held að þetta hafi verið 27. árið hjá okkur en við byrjuðum á þessu á sínum tíma til þess að losa okkur við rusl og byggingarefni úr hverfinu sem var þá að rísa," sagði Þráinn. MYNDATEXTI: Kóngur - Þráinn Sigurðsson, brennukóngur í 27 ár, með flugeldasýningu í bakgrunnni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar