Flugeldar

Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Flugeldar

Kaupa Í körfu

NÓG verður að gera á endurvinnslustöðvum Sorpu á næstunni ef flugeldaruslið, sem finna má á götum höfuðborgarsvæðisins, skilar sér þangað. Elva Rakel Jónsdóttir, gæða- og þjónustufulltrúi hjá Sorpu, segir að ekki sé ætlast til þess að flugeldaleifar fari í heimilissorp, enda séu þær plássfrekar og sorpheimta höfuðborgarsvæðisins anni ekki slíku magni. Fólk geti komið á endurvinnslustöðvarnar með flugeldaleifarnar. Þar séu þær flokkaðar og fólk geti fengið aðstoð starfsfólks endurvinnslustöðvanna við flokkunina. Sumar leifanna séu flugeldaprik úr viði og einnig sé mikið um pappaspjöld sem flokkist sem bylgjupappi. MYNDATEXTI:Leifar- Myndarlegur stafli flugeldaleifa var í Skógarhlíð í Reykjavík í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar