Sorpa Sævarhöfða

Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Sorpa Sævarhöfða

Kaupa Í körfu

NÓG verður að gera á endurvinnslustöðvum Sorpu á næstunni ef flugeldaruslið, sem finna má á götum höfuðborgarsvæðisins, skilar sér þangað. Elva Rakel Jónsdóttir, gæða- og þjónustufulltrúi hjá Sorpu, segir að ekki sé ætlast til þess að flugeldaleifar fari í heimilissorp, enda séu þær plássfrekar og sorpheimta höfuðborgarsvæðisins anni ekki slíku magni. Fólk geti komið á endurvinnslustöðvarnar með flugeldaleifarnar. Þar séu þær flokkaðar og fólk geti fengið aðstoð starfsfólks endurvinnslustöðvanna við flokkunina. Sumar leifanna séu flugeldaprik úr viði og einnig sé mikið um pa ppaspjöld sem flokkist sem bylgjupappi. MYNDATEXTI:Í Sorpu - Jóhannes Magnússon skilaði sínu í Sorpu við Sævarhöfða í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar