Dansskóli Köru og Jóns Péturs

Dansskóli Köru og Jóns Péturs

Kaupa Í körfu

Jón Pétur Úlfljótsson sótti reglulega dansnámskeið í Ólafsvík sem barn og fram á unglingsaldur og þegar hann flutti tvítugur til Reykjavíkur hélt hann dansinum áfram þar. Kara Arngrímsdóttir aftur á móti ólst upp í Reykjavík og byrjaði að æfa þar dans fjögurra ára gömul. Þau lærðu svo bæði til danskennara hjá Sigurði Hákonarsyni og stofnuðu eigin dansskóla árið 1989 – Dansskóla Jóns Pétur & Köru. Samhliða námi og skólarekstri kepptu þau í dansi en þau tóku þátt í fyrsta Íslandsmótinu sem haldið var árið 1986 og kepptu alveg fram til vors 1997. Í dag eru skráðir á bilinu sex til sjö hundruð nemendur í Dansskóla Jóns Pétur & Köru en jafnframt fara þau Jón og Kara reglulega út á land til að kenna í sveitaskólum og ýmsum þéttbýliskjörnum. MYNDATEXTI Nokkrir krakkar taka sporið í samkvæmisdansi

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar